ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Segir fráhvarf McDonalds merki um bata

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:25 › 27. október 2009
Ambros Evans-Pritchard.

Ambros Evans-Pritchard.

„Veikt gengi íslensku krónunnar er að gera nákvæmlega það sem það á að vera að gera. Útflutningur Íslands er að styrkjast og innflutningur er í rénun,“ skrifar breski hagfræðingurinn Ambrose Evans-Pritchard í breska dagblaðið Telegraph. Hann segir stefnu Íslands vera að virka í kjölfar fráhvarfs McDonalds-veitingastaðarins af Íslandi.

Evans-Pritchard segir gengi krónunnar vera að gera góða hluti fyrir íslenskt efnahagslíf og segir Ísland vera að ná sér fyrr úr kreppunni en Írland, Lettland og Litháen. Hann segir jákvæð áhrif gengi krónunnar á íslenskan útflutning eiga eftir að vera ennþá ljósari á næstu tveimur árum. Ásamt því segir hann að ef hann heyri enn eina manneskjuna segja að gengi íslensku krónunnar sé hörmulegt neyðist hann til að gefa þeirri manneskju vænann kinnhest.

Hægt er að lesa greinina á http://blogs.telegraph.co.uk/finance/author/ambroseevans-pritchard/



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.