ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Ögmundur: Höfundur Staksteina með reynslu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:26 › 27. október 2009

„Eitt augnablik hvarflaði að mér að Staksteinahöfundur dagsins á Mogga gæti verið stjórnmálamaður. Með reynslu. Og að hann væri að gefa lýsingu á sjálfum sér, samkvæmt formúlunni, margur heldur mig sig,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, á heimasíðu sinni um skrif í Staksteinadálk Morgunblaðisins.

Ögmundur segir af nógu að taka þegar leynimakk og baksamningar eru annars vegar. „ ...til dæmis úr heimi bankamálanna sem þessa dagana eru í brennidepli; hvernig bankarnir voru fengnir félögum og vinum í hendur fyrir slikk. Sem væri nú sök sér hefðu þeir ekki síðan komið okkur út í það fen sem við erum nú stödd í. Látum þetta liggja á milli hluta,“ segir Ögmundur á heimasíðu og bendir á að baksamningar séu á dagskrá í Staksteinum Morgunblaðisins í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.