Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sautján ára bresk stúlka var myrt af manni sem hún kynntist á internetinu og sagðist vera sextán ára gamall. Þau höfðu ákveðið að hittast en í ljós kom að sextán ára drengurinn var 32 ára. Stúlkan, Ashleigh Hall hafði sagt móður sinni að hún ætlaði að gista hjá vini sínum síðastliðið sunnudagskvöld. Eftir að móðir hennar hafði reynt að ná sambandi við dóttur sína í allan gærdag hafði hún samband við lögregluna.
Atburðarrásin var hröð í kjölfarið. Leitin að stúlkunni tók óvæntan viðsnúning þegar lögreglan handtók 32 tveggja ára mann fyrir að brjóta umferðarlög. Er hann var í haldi á lögreglustöðinni viðurkenndi hann að hafa myrt stúlkuna og leiddi lögregluna að staðnum þar sem hann faldi líkið.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu