ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Meint misferli í Varnamálastofnun

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
08:25 › 27. október 2009
Ellisif Tinna Víðisdóttir er forstjóri Varnamálastofnunar.

Ellisif Tinna Víðisdóttir er forstjóri Varnamálastofnunar.

  • Varnarmálastofnun annast meðal annars loftrýmiseftirlit og varnir með samningum við nágrannaþjóðir um veru herþotna hér á landi um lengri eða skemmri tíma.

    Varnarmálastofnun annast meðal annars loftrýmiseftirlit og varnir með samningum við nágrannaþjóðir um veru herþotna hér á landi um lengri eða skemmri tíma.

  • Óperusöngvari og frændi Ellisifjar forstjóra dvelur nú hjá leyniþjónustustofnun Nató.

    Óperusöngvari og frændi Ellisifjar forstjóra dvelur nú hjá leyniþjónustustofnun Nató.

Ríkisendurskoðun hefur lokið rannsókn á því hvort Varnarmálastofnun hafi sniðgengið lög við kaup á tugmilljóna búnaði í ratstjárstöðvar, en skýrslan verður birt eftir nokkra daga. Heimildir eru fyrir því að ekki hafi alltaf verið fylgt settum reglum eða gætt viðeigandi sjónarmiða við ráðningar á starfsfólki að stofnuninni.

Ríkisendurskoðun bíður umsagna við skýrslunni sem að öðru leyti er tilbúin af hálfu embættisins um meint misferli innan Varnarmálastofnunar. Skýrslan verður birt á næstu dögum.

Untaríkisráðuneytið vísaði málum Varnarmálastofnunar til skoðunar hjá ríkisendurskoðanda í sumar vegna grunsemda um að ekki hefði verið farið að settum reglum um útboð, innkaup og meðferð á opinberu fé.

Þannig er menntaður óperusöngvari og frændi forstjórans í leyniþjónustuþjálfun í Bretlandi á vegum Varnarmálastofnunar. Nánar er fjallað um málið í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?