Lögreglustjóri verður ekki við óskum Sveins Andra

Sveinn Andri Sveinsson.

Sveinn Andri Sveinsson.

Þriðjudagur 27. október 2009 kl 17:42

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, hafnar alfarið frasögn lögmannsins Sveins Andra Sveinssonar í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag á handtöku manns sem grunaður er um að tengjast mannsalsmálinu svokallaða. Sigríður segir í yfirlýsingu að lögreglan hafi haft að leiðarljósi í aðgerðum sínum að ganga ekki harðar fram en þörf er á við framkvæmd starfa sinn og gætir þess sérstaklega þegar börn eiga í hlut á vettvangi.

„Í þessu tilviki fóru fimm óeinkennisklæddir lögreglumenn að húsinu og þar utandyra hittu þeir eiginkonu grunaða ásamt tveimur börnum hennar. Lögreglan kynnti konunni fyrirhugaðar aðgerðir. Konan fékk að hringja í móður sína og síðan í vinkonu sína sem hún bað um að sækja börnin. Eldra barnið, telpa, fór á brott með vinkonu sinni og var það með vitund og vilja móðurinnar,“ segir í yfirlýsingu frá Sigríði Björk.

Hún segir eiginmann konunnar hafa verið mjög æstan og dónalegan við lögregluna er hann kom heimog sýndi þá hegðun að syni sínum ásjáandi. „Maðurinn var síðan handtekinn í húsinu vegna hegðunar sinnar og færður í handjárn. Hvorugt barnið varð vitni að þeirri aðgerð né þegar maðurinn var fluttur á brott af heimilinu af tveimur einkennisklæddum lögreglumönnum. Kona kom á vettvang og tók drenginn á brott með sér að ósk móðurinnar. Húsleit var gerð á heimilinu að konunni og lögmanni viðstöddum,“ segir í yfirlýsingu frá Sigríði Björk.

Sigríður Björk segir eiginkonuna hafa verið ósamvinnuþýða meðan á aðgerðinni stóð og neitaði að gefa upplýsingar sem óskað var eftir. „Ákveðið var að handtaka hana og færa til yfirheyrslu. Engri valdbeitingu var beitt við handtöku konunnar og var hún færð í fangageymslu eftir að húsleit lauk en aðgerðin stóð í um 4 klukkustundir,“ segir í yfirlýsingu frá Sigríði Björk.

Að því er fram kemur á fréttavef Vísis sagði Sveinn Andri í hádegisfréttum Bylgjunnar að konan sé í miklu áfall og ekki verði við það unað hvaða meðferð hún fékk. Sveinn Andri sagði 30 lögreglumenn í skotheldum vestum hafa ruðst inn á heimili hjónanna og tvö börn hafi fylgst með. Hann fór fram á opinberlegri afsökunarbeiðni vegna vegna aðgerða lögreglu.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 11:37

Mansalsmálið: Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds

Miðvikudagur 4. nóvember 2009 kl 17:17

Mansalsmálið: Sex menn áfram í gæsluvarðhaldi

Föstudagur 30. október 2009 kl 18:35

Mansalsmálið: Allir liggja ennþá undir grun

Föstudagur 30. október 2009 kl 14:33

Mansalsmálið: „Hver djöfullinn gengur á?“

Miðvikudagur 28. október 2009 kl 18:13

Mansalsmálið: „Frábært að fá manninn minn heim.“

Miðvikudagur 28. október 2009 kl 12:22

Mansalsmálið: krefjast framlengingar yfir sjömenningunum

Miðvikudagur 28. október 2009 kl 09:35

Börnin kæra lögregluna

Þriðjudagur 27. október 2009 kl 13:16

Fráleit handtaka og börnin í sjokki

Föstudagur 23. október 2009 kl 18:08

Einn Íslendinganna laus úr gæsluvarðhaldi

Miðvikudagur 21. október 2009 kl 12:19

Mansalsmálið: Íslendingar í gæsluvarðhald

Sunnudagur 18. október 2009 kl 21:35

Mansalsmál: Upplýsingar konunnar voru réttar

Laugardagur 17. október 2009 kl 19:12

Eftirlýstir menn gáfu sig allir fram við lögreglu

Laugardagur 17. október 2009 kl 16:15

Hefur þú séð þessa menn? Eftirlýstir í mansalsmáli

Laugardagur 17. október 2009 kl 12:11

Fórnarlamb mansals í „góðu yfirlæti“

Föstudagur 16. október 2009 kl 22:55

Ferðaskilríki konunnar voru fölsuð

Föstudagur 16. október 2009 kl 11:20

Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist yfir 3 Litháum

Föstudagur 16. október 2009 kl 10:32

Fóru mannavillt í leit að fjórða Litháanum

Föstudagur 16. október 2009 kl 08:13

Konan sem hvarf komin í leitirnar

Fimmtudagur 15. október 2009 kl 16:59

Dularfullt mannshvarf: Þrír í gæsluvarðhald

Fimmtudagur 15. október 2009 kl 13:09

Þessi kona er í hættu