ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Kennir Lloyds bankanum um sjálfsvíg eiginkonu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 27. október 2009

Syrgjandi eiginmaður kennir Lloyds bankanum um sjálfsvíg eignkonu sinnar. Tveggja barna breska móðirin Victoria Davis kraup á kné fyrir framan lest sem fór yfir hana á fullri ferð. Hún gerði það eftir að Lloyds bankinn endurkallaði 30.000 punda yfirdrátt, sem samsvarar sex milljónum íslenskra króna, úr fyrirtæki þeirra hjóna en þau ráku leigubílafyrirtæki í Bretlandi.

Eiginmaðurinn Mark Davis segir Lloyds bankann hafa sett kröfu á lánið árlega en fyrir skömmu ákvað hann að gera það mánaðarlega og á endanum lokaði hann á yfirdráttinn hjá þeim.

„Við gerðum allt sem þeir báðu okkur um að gera en þeir settu endalausar kröfur á okkur. Ég er einstaklega bitur vegna málsins. Lloyds bankinn ber einhverja ábyrgð á dauða konu minnar,“ segir Mark Davis í samtali við breska dagblaðið Daily Mail.

Sjálfsvís Victoriu Davis var í kjölfar þess að banker neituðu einstakilingum og fyrirtækjum um yfirdrætti eftir að þeir fengu peninga frá breska ríkinu til að halda sér á floti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.