ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Kallar iðrandi ritstjóra Kastljóss pínukall

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:29 › 27. október 2009
Guðmundur Gunnarsson kallar Þórhall Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss, pínukall.

Guðmundur Gunnarsson kallar Þórhall Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss, pínukall.

Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, sendi Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, afsökunarbréf í dag vegna þess hvernig það var kynnt í þættinum að Guðmundur mætti ekki til að ræða mál verkalýðshreyfingarinnar í gær. Sagði Helgi Seljan þá að Guðmundur hefði afþakkað boð um að koma en ekki sagt frá því að formaðurinn hefði verið á Sauðárkróki.

Guðmundur Gunnarsson segir frá afsökunarbeiðninni á bloggsíðu sinni í kvöld.

,,Fékk seinni partinn í dag með tölvupósti afsökunabeiðni frá Þórhalli ritstjóra Kastljóss.
Aðeins reynt að klóra í bakkann. Þó svo þeir hafi vitað að ég gæti ekki komið, fengu þeir annan mann til þess að hringja í mig og notuðu svo hluta svars hans án þess að hann vissi til þess að afsaka sig," bloggar Guðmundur.

Það er að skilja á formanninum að hann hyggist ekki fyrirgefa þrátt fyrir auðmýkt ritstjórans.
,,Svona pínukalla afsökun sem er hvísluð þar sem fáir heyra," bloggar Guðmundur.
Hann endar færsluna með með að spyrja til hvers svoleiðis afsökun sé.

,,Hún er til þess að pínukallar geti lifað með sjálfum sér og gerir ekkert annað - en að staðfesta skoðun manns á pínuköllum".



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.