Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ungur piltur fór á rúntinn um helgina með glænýtt ökuskírteini í vasanum. Sá var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekkunni en bíll hans mældist á 128 km hraða. Auk sektarinnar fer pilturinn í akstursbann og verður gert að setjast aftur á skólabekk til að læra upp á nýtt hvernig á að aka bíl.
Annars voru nokkrir tugir ökumanna teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en lögreglan var víða við hraðamælingar. Í grófustu brotunum var ekið á 40-50 km hraða umfram leyfilegan hámarkshraða og ljóst að pyngja margra mun léttast verulega vegna þessa.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning