Haukur Holm hefur verið nær daglegur gestur á sjónvarpsskjám landsmanna í fjölmörg ár. Hann er nú hættur á Stöð 2.
Hauki Holm, fréttamanni á Stöð 2, hefur verið sagt upp störfum eftir fjölmörg ár á skjánum. Haukur bætist þar við langan lista sjónvarpsmanna sem sagt hefur verið upp störfum hjá 365 miðlum undanfarið.
Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttastjóri Stöðvar 2 og vísis staðfestir að Haukur Holm hafi verið látinn fara í dag. Auk Hauks hefur Sævari Jóhannessyni, yfirmanni grafíkdeildar, verið sagt upp störfum.
„Þetta er hluti af því endurskipulagningarferli sem hófst fyrir rúmu ári síðan og sér ekki fyrir endann á,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis, aðspurður um ástæður brotthvarfs Hauks. Fréttastjórinn segir engan ágreining hafa komið upp milli Hauks og Stöðvar 2 sem orsakaði brottreksturinn, allar þær mannabreytingar sem gerðar séu og hafi verið gerðar séu liður í endurskipulagningu fyrirtækisins.
Um mánaðamótin bætist hins vegar aftur í hóp fréttamanna Stöðvar 2 en þá hefur þar störf Karen Dröfn Kjartansdóttir sem starfað hefur á Fréttablaðinu og er nýkomin aftur úr barneignarleyfi.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“