ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Fundu hníf í Subway-samloku

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:34 › 27. október 2009

Rétt áður en bandarísk kona beit í Subway-samloku fann hún fyrir einhverju beittu er hún handlék samlokuna. Í ljós kom að þetta var gríðarstór og beittur hnífur sem var í samlokunni. Konan og eiginmaður hennar fóru aftur á Subway-staðinn sem seldi þeim samlokuna og fengu þar endurgreitt fyrir lokuna, fría máltíð að auki og útskýringu um að hnífurinn, sem er notaður til að mæla lengd brauðsins, hafði óvart verið í samlokubrauðinu þegar það var sett inn í bökunarofninn.

Hafa hjónin ákveðið að hefja vakningarátak um Bandaríkin sem hvetja veitingastaði til að huga betur að eftirliti í eldhúsum þeirra svo álíka atvik komi ekki upp aftur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.