Sveinn Andri Sveinsson, verjandi konunnar sem var handtekin ásamt eiginmanni sínum í tengslum við mansalsmálið sem lögregla hefur til rannsóknar, gagnrýnir handtökuna harðlega. Hann segir algjörlega ástæðulaust að tengja hana inn í rannsókn málsins.
„Ég átta mig ekki á því hvers vegna minn skjólstæðingur var handtekinn því hún virðist hafa unnið sér það eitt til saka að vera eiginkona meints sakbornings og tengist málinu með engum hætti. Handtakan var fráleit og algjörlega að ástæðulausu að halda henni yfir nótt. Það virðist vera mikill þrýstingur á að taka málið af hörku en menn mega ekki gleyma sér algjörlega. Börnin voru í sjokki og þetta hefur fengið mjög á þau. Svona lagað verður að passa,“ segir Sveinn Andri.
„Lögreglan fór inn á heimilið þar sem heimilisfaðirinn var tekinn með látum. Meginreglan er sú að farið sé fram af nærgætni þegar vitað er að börn eru í spilinu og þau eiga alls ekki að vera viðstödd þegar foreldrar eru handteknir. Það var klárlega ekki passað upp á í þessu tilviki og borðleggjandi að hún mun leita réttar sín varðandi ólögmæta handtöku. Þar fyrir utan var skjólstæðingurinn minn beittur þrýstingi og plataður inn á að kalla mig ekki til,“ segir Sveinn Andri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna