Ellissif Tinna Víðisdóttir hefur ráðið frænda sinn, menntaðan óperusöngvara, í greiningasvið Varnamálastofnunar.
Óperusöngvarinn Björn Ingiberg Jónsson hefur undanfarnar vikur verið á vegum Varnamálastofnunar hjá leyniþjónustustofnun Nató í Molesworth í Englandi. Björn Ingiberg, sem er náfrændi Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra Varnamálastofnunar, er einn þeirra sem ráðnir hafa verið á svokallað greiningarsvið stofnunarinnar.
Á fjárlögum þessa árs var áætlað að verja liðlega 1,2 milljörðum króna í rekstur Varnamálastofnunar. Frá því stofnunin tók til starfa 1. júní í fyrra hefur fjöldi starfsmanna verið ráðinn til verka og eru þeir nú á sjötta tug. Þar af vinna sjö á ratsjárstonfunum fjórum, Á Stokksnesi við Hornafjörð, Gunnólfsvíkurfjalli á Langanesi og Bolafjalli við Bolungarvík.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma