ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Þú borgar ígildi þriggja bíla

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
14:15 › 27. október 2009
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnir úrræði ríkisstjórnarinnar fyrir eigendur erlendra bílalána.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnir úrræði ríkisstjórnarinnar fyrir eigendur erlendra bílalána.

Einstaklingur sem tók árið 2007 erlent bílalán þarf að borga það þrefalt til baka, nýti hann sér úrræði Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um greiðslujöfnun. Lögin hafa í för með sér að þeir sem tóku gengistryggð bílalán og vilja eignast bílinn taka alfarið á sig gengishrun íslensku krónunnar.

Engin erlend bílalán verða afskrifuð þegar samningstíma lýkur, ekki heldur að loknum þremur árum sem geta bæst við lánstímann ef lántakinn velur að nýta sér heimildina um greiðslujöfnun. Ef sú leið er farin getur fólk valið um að greiða skuldina að fullu eða skila bílnum.

DV hefur í höndunum lán einstaklings sem tók sjö ára, 2,5 milljón króna gengislán, til helminga í japönskum jenum og svissneskum frönkum, í júlí 2007. Ef gengið krónunnar hefði ekki hrunið, heldur haldist stöðugt, hefði einstaklingurinn á sjö árum greitt um 2,95 milljónir króna í heildina af 2,5 milljón króna láni. Ef fer sem nú horfir greiðir hann rúmar 6,5 milljónir króna á lengdum lánstímanum, ef hann nýtir sér úrræði félagsmálráðherra.

Ef hann vill eignast bílinn greiðir hann, miðað við núverandi gengi, 800 þúsund í viðbót eða 7,3 milljónir í heildina. Það er nærri þreföld sú upphæð sem hann upphaflega tók. Miðað við að bíllinn hafi í upphafi verið nýr verður bíllinn orðinn rúmlega 11 ára gamall þegar lántakinn eignast bílinn alveg.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.