McDonalds hættir – íslensk áhersla á nýjum stöðum

Bæ, bæ Big Mac. McDonalds skyndibitakeðjan hættir hér á landi. Rekstur heldur áfram undir nýju nafni með áherslu á íslensk gæði.

Bæ, bæ Big Mac. McDonalds skyndibitakeðjan hættir hér á landi. Rekstur heldur áfram undir nýju nafni með áherslu á íslensk gæði.

Mánudagur 26. október 2009 kl 09:06

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

  • Nýr matseðill, kunnulegt útlit.

    Nýr matseðill, kunnulegt útlit.

  • Svona kemur nýr staður til með að líta út við Suðurlandsbraut.

    Svona kemur nýr staður til með að líta út við Suðurlandsbraut.

Um mánaðarmótin mun Lyst ehf. hætta samstarfi við McDonalds skyndibitakeðjuna en fyrirtækið hefur rekið þrjá veitingastaði undir sérleyfi frá bandaríska risanum undanfarin ár. Rekstri staðanna verður haldið áfram undir nafninu Metro sem mun bjóða svipaðar vörur og áþekkan matseðil þar sem þó verður lögð áhersla á íslenskt hráefni. Breytingin mun vera gerð í góðu samkomulagi við McDonalds.

Í tilkynningu frá félaginu segir að ástæðan sé fyrst og fremst erfitt efnahagsumhverfi hér á landi og hrun gengis íslensku krónunnar ráði þar mestu. Undanfarin ári hefur Lyst ehf. keypt flest hráefni í McDonalds réttina, kjöt, ost, grænmeti og önnur aðföng af erlendum birgjum samkvæmt kröfum og stöðlum keðjunnar. Hráefniskostnaður fyrirtæksins hefur hins vegar tvöfaldast sökum gengishrunsins og gert afkomuna erfiða.

Er ekki trú á að efnahagsaðstæður hér batni nægilega til að rekstur veitingastaða undir merkjum McDonalds verði arðbær til lengri tíma.

Veitingastaðirnir þrír, á Suðurlandsbraut, í Kringlunni og á Smáratorgi munu halda áfram undir hinu nýja nafni. Fram kemur í tilkynningunni að 10-15 störf verði til hjá innlendum framleiðendum vegna breytinganna en nautakjöt, kjúklingur, mjólkurvörur, sósur, brauð og grænmeti meðal annars verði allt frá innlendum framleiðendum.

Að lokum er bent á að viðskiptavinir Metro muni frá og með 1. nóvember geta gengið að svipuðum matseðli og verið hefur hjá McDonalds.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 22:52

Hermaður gekk berserksgang – 12 látnir á herstöð

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 22:31

Afhverju er barnið að gráta? IPhone er með svarið

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 20:10

Innganga í ESB yrði kolfelld samkvæmt nýrri könnun

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:50

7 mánaða stúlka fannst á lífi - falin í kassa undir rúmi

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:15

Fjármálastjóri KSÍ glataði milljónum á næturklúbbabrölti

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 17:17

Nóróveirusýking Kaupþingsfólks í rénun

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 15:07

Dauðvona barni bjargað með ósamþykktu lyfi

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 14:28

FM Belfast: Best geymda leyndarmálið

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 14:15

Veruleg kaupmáttarrýrnun: „Næsta ár verður afar erfitt“

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 14:09

USB 3.0 staðall á næsta ári?

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 14:04

Hittu þekktustu stuðningsmenn United

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 13:30

Bandarískur skólastrákur orðinn að andlegum trúarleiðtoga

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 12:25

Linda Björk komin í varðhald aftur

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 12:25

Siggi Hlö umvafinn konum

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 12:12

Nauðgað fyrir framan son sinn

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 12:02

30 leiðir til að fara á hausinn

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 11:45

Apple í sókn

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 10:41

Stýrivaxtalækkun: „Lítil hreyfing í rétta átt“

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 10:08

Faðir Lindu Bjarkar: „Óþægilegast að vita ekkert hvar hún er“

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 09:35

Séra Gunnar: Ræktar garðinn sinn