ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Einn Íslendinganna laus úr gæsluvarðhaldi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:08 › 23. október 2009
Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum þriggja Íslendinga sem handteknir voru á þriðjudaginn úr gildi í dag.

Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum þriggja Íslendinga sem handteknir voru á þriðjudaginn úr gildi í dag.

Einum af Íslendingunum, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í tengslum við mansalsmálið á Suðurnesjum, hefur verið sleppt úr haldi að því er fram kemur á Vísi nú fyrir stundu.

Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á miðvikudaginn eftir að hafa verið handteknir í aðgerðum lögreglunnar á þriðjudaginn var. Þeir kærðu allir úrskurðinn til Hæstaréttar sem staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur mannanna í dag en felldi hann úr gildi yfir þeim þriðja að því er segir á Vísi.

Sem fyrr sæta fimm Litháar gæsluvarðhalds í þágu málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.