ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Hæstiréttur þyngdi dóm yfir barnaníðingi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:48 › 22. október 2009
Mál mannsins vakti mikinn óhug þegar það kom upp á sínum tíma.

Mál mannsins vakti mikinn óhug þegar það kom upp á sínum tíma.

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni, sem misnotaði barnunga dóttur sína, um þrjú ár. Dæmdi Hæstiréttur manninn í fimm ára fangelsi fyrir að hafa í mörg skipti nauðgað dóttur sinni sem var tveggja og þriggja ára þegar brotin voru framin. Þá var honum ert að greiða 1,5 milljónir króna í miskabætur til telpunnar.

Brot mannsins gegn dóttur sinni áttu sér stað frá september 2007 til nóvember 2008. Fram kemur í dómnum að brot hans hafi verið ítrekuð, alvarleg og til þess fallin að hafa mikil og varanleg áhrif á telpuna.

Það var ríkissaksóknari sem skaut málinu til Hæstaréttar þann 6. mars síðastliðinn og krafðist þess að héraðsdómur yfir manninum yrði staðfestur en refsing hans þyngd.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.