Segir RÚV ekki bera ábyrgð á bloggsíðu Egils
Páll Magnússon styður Egil og silfur hans.
„Mér sýnist hann vera að rugla saman þáttunum hans Egils og bloggsíðunni sem hann heldur úti. RÚV ber enga ábyrgð á þessari bloggsíðu,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri aðspurður um bloggfærslu Björns Bjarnasonar þar sem kallað er eftir því að Egill verði rekinn. Birni þykir Egill óhæfur til að stjórna sjónvarpsþætti á RÚV þar sem hann sé of hlutdrægur í afstöðu sinni til manna og málefna.
„Ég hef svo sem ekki mikið um þetta að segja annað en að ég er ósammála Birni Bjarnasyni um það sem hann kallar einhverja lögleysu í kringum þátt Egils. Hann þyrfti eiginlega að nefna einhver dæmi það,“ segir Páll og telur að ráðherrann fyrrverandi sé að blanda bloggsíðu Egils inn í málið. Hún komi hvorki þættinum né RÚV við.
Á bloggi sínu í gærkvöldi spurði Björn hver hefði heimild til að leysa Egil undan lögum um Ríkisútvarpið og kallar veru hans þar lögleysu.
„Það hefur enginn verið að leysa Egil undan lögum um RÚV. Bloggsíðan er ekki á vegum RÚV og lítur ekki þeim regluramma sem við setjum þáttum sem eru á dagskrá. Menn verða að gera greinarmun þar á,“ segir Páll í samtali við DV.is og bætir við að enginn vafi leiki á um lögmæti Egils og þáttarins líkt og Björn vill meina.
Miðvikudagur 21. október 2009 kl 11:31
Egill Helga: „Annað skiptið sem þeir vilja láta reka mig“
Miðvikudagur 21. október 2009 kl 09:00







