Þáttastjórnandinn Egill Helgason segir á bloggsíðu sinni í dag um árás Björns Bjarnasonar á hann í gærkvöldi að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann hafi viljað koma honum frá störfum sem þáttastjórnandi Silfursins. Egill segir hóp sjálfstæðismanna áður hafa gert atlögu að sér og tekist ætlunarverk sitt þegar Egill var með þátt sinn á SkjáEinum.
„Fyrst kom Hannes, svo Sturla Böðvarsson, og þá Björn Bjarnason, ég var reyndar búinn að bíða eftir honum. Seinast í fyrradag velti ég því fyrir mér af hverju hann væri ekki búinn að tjá sig. Og auðvitað kom það. Að ógleymdum Óla Birni Kárasyni,“ segir Egill um þá sem gert hafa athugasemdir við störf hans sem þáttastjórnanda að undanförnu.
„Þetta er í annað skiptið sem þeir vilja láta reka mig. Í fyrra skiptið tókst það. það var á Skjá einum árið 2003,“ skrifar Egill sem fyrr í morgun sagði í samtali við DV.is að „þessir menn“ legðu óskaplega fæð á sig.
Egill rekur málið aftur til borgarstjórnakosningarnar árið 2002 þegar Björn Bjarnason tapaði „illilega“ eins og hann orðar það.
„Hópurinn í kringum hann var mjög reiður út af þessu og leitaði að sökudólgum. Ég og Kristján Kristjánsson í Kastljósi vorum fljótt nefndir til sögunnar. Við vorum skensaðir á prenti hvað eftir annað og uppnefndir, af Hannesi Gissurarsyni og Birni sjálfum.“
Lesa má færslu Egils í heild sinni á bloggsíðu hans á Eyjunni hér.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision