„Hér skal áréttuð sú skoðun, að hlutdrægni Egils Helgasonar í afstöðu hans til manna og málefna geri hann óhæfan til að stjórna sjónvarpsþætti um þjóðmál, eigi þátturinn að lúta lögum um ríkisútvarpið,“ skrifar Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins á vefsíðu sína. Björn telur að reka ætti Egil.
„Lögleysan í kringum þátt Egils, verður ekki afsökuð með því, að hann sé einhver öryggisventill fyrir almenningsálitið, sem annars brytist fram á einn hroðalegri hátt en í nafnlausri illmælgi á bloggsíðu Egils. Hver hefur heimild til að leysa Egil Helgason undan lögum um ríkisútvarpið? Páll Magnússon, útvarpsstjóri? Sé svo, ætti hann að sýna eigendum RÚV hana,“ skrifar Björn harðorður á bloggsíðu sína í gær.
Björn lýsir Agli, auk Illuga Jökulssyni og Guðmundi Gunnarssyni, sem álitsgjöfum stjórnarflokkanna og ESB-aðildarsinna.
„Þeir leggja óskaplega fæð á mig þessir menn,“ segir Egill Helgason í samtali við DV.is en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um orð Björns.






Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir