ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Lítið traust á Rannsóknarnefnd Alþingis

12:47 › 20. október 2009
Flestir treysta Evu Joly, eða 66,9 prósent en fæstir Rannsóknarnefnd Alþingis, eða 27,1 prósent.

Flestir treysta Evu Joly, eða 66,9 prósent en fæstir Rannsóknarnefnd Alþingis, eða 27,1 prósent. Mynd DV

66,9 prósent landsmanna bera mikið traust til Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á refsiverðri háttsemi í tengslum við bankahrunið. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR framkvæmdi dagana 13. til 16. október síðastliðinn.

Samkvæmt könnuninni bera 7,7 sinnum fleiri mikið traust til Joly en lítið traust. Í sömu könnun var spurt um traust til sérstaks saksóknara, Ríkissaksóknara og Rannsóknarnefndar Alþingis. 52,8 prósent svarenda sögðust bera mikið traust til sérstaks saksóknara en 15,2 prósent lítið traust. 35,7 prósent sögðust treysta Ríkissaksóknara en 26,2 prósent lítið. Rannsóknarnefnd Alþingis mældist með tiltölulega lítið traust, eða 31,1 prósent á meðan 27,1 prósent sögðust bera mikið traust til hennar.

Um var að ræða síma- og netkönnun og var svarfjöldi 968 einstaklingar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.