ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Mansalsmál: Upplýsingar konunnar voru réttar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:35 › 18. október 2009
Ieva Grisiúte gaf upp rétt nafn og fæðingardag en talið var að svo væri ekki.

Ieva Grisiúte gaf upp rétt nafn og fæðingardag en talið var að svo væri ekki.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist í dag gæsluvarðhalds yfir tveimur Litháum sem taldir eru tengjast ætluðu mansali. Héraðsdómur Reykjaness féllst á kröfuna og er mönnunum gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 21. október næstkomandi. Nú sitja því alls 5 menn í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Einn maður var handtekinn í dag vegna rannsóknar málsins og verður hann yfirheyrður á morgun.

Upplýsingar hafa nú borist frá litháískum lögregluyfirvöldum fyrir milligöngu Alþjóðadeildar Ríkislögreglustjórans sem staðfesta að þær upplýsingar sem litháíska konan gaf um nafn sitt og fæðingardag séu réttar.

Fjöldi rannsóknarlögreglumanna hefur unnið stöðugt að rannsókn málsins undanfarna daga. Rannsóknin er nú á viðkvæmu stigi og ekki unnt að tjá sig frekar um hana á þessari stundu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.