Davíð Oddsson mun hafa tekið þá ákvörðun að birta ekki frétt Morgunblaðsins um yfirstandandi rannsókn á Baldri Guðlaugssyni.
Frétt þess efnis að aldavinur Davíðs Oddssonar, Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri, sætti rannsókn hjá embætti sérstaks saksóknara var aldrei birt í Morgunblaðinu. Áreiðanlegar heimildir DV herma að vitneskja um málið hafi verið til staðar hjá Morgunblaðinu í rúma viku þegar RÚV greindi fyrst frá málinu í kvöldfréttum sínum í gærkvöldi. Frétt blaðsins um málið, sem var tilbúin, virðist hafa verið stöðvuð.
Davíð Oddsson og Baldur Guðlaugsson tilheyra báðir Eimreiðarhópnum svokallaða sem undanfarna þrjá áratugi hefur verið innsti valdakjarni Sjálfstæðisflokksins. Meðal annarra í þeim hóp eru Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Geir H. Haarde og Þorsteinn Pálsson svo einhverjir séu nefndir. Baldur og Davíð eru aldavinir.
Heimildir DV herma að það hafi verið Davíð Oddsson ritstjóri sem stöðvaði birtingu greinarinnar.
Höfðu sagt upp áður en fréttin var stöðvuð
Getgátur eru uppi um það í Orðið á götunni á Eyjunni í dag að þessi ákvörðun hafi orðið til þess að helstu viðskiptablaðamenn og fráfarandi fréttastjóri viðskipta hjá Morgunblaðinu hafi sagt störfum sínum lausum. Svo mun þó ekki hafa verið samkvæmt heimildum DV. Ákvörðun meirihluta þeirra um að segja upp störfum hafi legið fyrir áður en umrætt atvik kom upp. Einn þeirra blaðamanna sem sögðu upp skrifaði þó fréttina um rannsóknina á Baldri sem aldrei var birt.
Eftir að greint var frá málinu í fréttatíma RÚV birtist útdráttur úr þeirri frétt á mbl.is í gærkvöldi.
Ber fyrir sig trúnað á ritstjórn
Fjórmenningarnir sem sögðu upp störfum á Morgunblaðinu hafa ekkert viljað tjá sig um málið í dag en Pressan.is hefur eftir Björgvin Guðmundssyni, fráfarandi fréttastjóra viðskipta hjá Morgunblaðinu, að alltaf væru einhverjar fréttir á hverjum degi sem þurfi að staðfesta betur, að mati ritstjóra. Hann var spurður hvort fullyrðingar þess efnis um að Morgunblaðið hafi legið á fréttinni um Baldur og bar Björgvin því fyrir sig að hann gæti engu svarað um það og ber fyrir sig trúnað á ritstjórn.
DV hefur óskað eftir að fá svör frá Óskari Magnússyni útgefanda eða ritstjórum Morgunblaðsins en ekkert svar hefur borist.






Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða