Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og núverandi ráðuneytisstjóri í Menntamálaráðuneytinu, hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta þess efnis að hann sæti rannsókn vegna meintra innherjaviðskipta. Hann segist ekkert hafa heyrt frá sérstökum saksóknara.
RÚV greindi frá því í gærkvöldi að Baldur sætti rannsókn hjá embætti sérstaks saksóknara vegna sölu hans á hlutum sínum í Landsbankanum eftir að hafa setið fund í Lundúnum um stöðu bankans með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands þann 2. september 2008. Þungar áhyggjur á stöðu Landsbankans í Bretlandi komu fram á fundinum.
Vísir.is birti eftirfarandi fréttatilkynningu frá Baldri nú fyrir stundu, DV.is barst ekki þessi tilkynning.
„Vegna frétta fjölmiðla um að sérstakur saksóknari rannsaki nú meint innherjaviðskipti mín með hlutabréf í Landsbankanum haustið 2008 óska ég eftir að koma eftirfarandi á framfæri:
1. Fjármálaeftirlitið tók á sínum tíma til athugunar viðskipti mín með hlutabréf í Landsbankanum. Að lokinni ítarlegri athugun tilkynnti Fjármálaeftirlitið mér skriflega í maí sl. að það teldi að fullnægjandi skýringar og gögn hefðu komið fram því til stuðnings að ég hefði ekki búið yfir innherjaupplýsingum þegar umrædd hlutabréfaviðskipti áttu sér stað. Fjármálaeftirlitið kvaðst því ekki telja tilefni til frekari athugunar á málinu.
2. Mér hafa ekki verið kynntar neinar nýjar upplýsingar eða gögn sem endurupptaka málsins eða ný rannsókn geti grundvallast á Og frá sérstökum saksóknara hef ég ekkert heyrt. Ég hef því enga ástæðu til að ætla annað en að efnisleg niðurstaða fyrri rannsóknar standi.“
Ráðherra hafði heyrt af rannsókninni
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í dag þegar hún var spurð um mál Baldurs að ákvörðun yrði tekin eftir helgi hvort Baldur yrði sendur í leyfi á meðan rannsókn sérstaks saksóknara á meintum innherjaviðskiptum hans væri fram. Þá staðfesti Katrín að hún hefði frétt það nýlega að Fjármálaeftirlitið hefði tekið mál Baldurs upp á nýjan leik og sent það til sérstaks saksóknara.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
