Brosið sem bræddi heiminn. Unnur Birna sér eftir að hafa hleypt fjölmiðlum of nærri sér. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Eftir allt sem Unnur Birna Vilhjálmsdóttir hefur upplifað á undanförnum árum fannst henni erfiðast þegar fjallað var um einkalíf hennar og þá ekki síst ástamálin.
„Ég bauð nú svolítið upp á það með því að tjá mig of mikið í staðinn fyrir að sleppa því bara.“ En ég man að það var svolítið raunveruleikasjokk fyrir mig þegar ég var nýbúin að vinna Ungfrú Ísland og það hringdi í mig blaðamaður. Hann spurði mig út í samband sem ég hafði verið í og var að ljúka og þegar ég hikaði við svör hreytti hann því í mig mjög dónalega að nú væri ég orðin opinber persóna og yrði að tjá mig um svona hluti,“ segir Unnur Birna í viðtali við helgarblað DV að þessu sinni.
Hleypti fjölmiðlum of nærri sér
Unnur segir það eitt af fáum atriðum sem hún sjái eftir undanfarin ár. Að hafa hleypt fjölmiðlum of nærri sér og þessum part af lífi hennar.
Misjafnlega hefur verið farið með staðreyndir varðandi viðkvæm mál en þess ber að minnast þegar Unnur ræddi opinskátt um áfall sem hún varð fyrir í einkalífinu við tímaritið Ísafold. „Mér fannst á þeim tíma að ég þyrfti að tala um þessa hluti til þess að gera hreint fyrir mínum dyrum. Því margt sem hafði verið sagt og skrifað var ekki rétt. En eftir á að hyggja sé ég eftir að hafa gert það. Það hjálpaði engum og það var algjör óþarfi að blanda svona mörgum inn í málið.“
Unnur sér samt ekki eftir viðtalinu sjálfu þar sem hún gerði upp árið sitt sem ungfrú heimur. „Það var svo margt annað í þessu viðtali en auðvitað fékk það enga athygli og það man enginn eftir því.“ Þegar Unnur er svo spurð hvernig ástamál hennar standi nú segir hún án þess að hika: „Það er liðin tíð að ég tjái mig um einkamál mín í fjölmiðlum,“ og brosir kankvís á svip.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir