Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, sætir rannsókn hjá embætti sérstaks saksóknara. Til rannsóknar er umdeild sala Baldurs á hlut sínum í Landsbankanum eftir að hafa setið fund með Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra og embættismönnum um Icesave- og Landsbankamál 2. september 2008, korteri fyrir hrun.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Sala Baldurs sætti gríðarlegri gagnrýni þegar upp komst um málið. Darling hefur tekið fram að á fundinum hafi hann lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Landsbankans í London. Fáeinum dögum eftir fundinn seldi Baldur bréfin, um mánuði áður en ríkið þjóðnýtti bankann. Náði hann því að selja áður en bréfin urðu verðlaus. Hann hefur aldrei viljað gefa upp hversu háar fjárhæðir þetta voru.
Sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort hann hafi eftir fundinn verið orðinn innherji og hvort salan flokkist sem innherjaviðskipti. Baldur kveðst hafa selt bréfin eftir að hafa lesið um bága stöðu bankans í fjölmiðlum.
Í svari sínu við fyrirspurn DV í október 2008 sagði Baldur orðrétt: „Það er misskilningur að fundurinn í London hafi snúist um stöðu Landsbankans.“
Baldur er nú ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
