ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Hefur þú séð þessa menn? Eftirlýstir í mansalsmáli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:15 › 17. október 2009
Getur þú veitt upplýsingar um þessa tvo menn?

Getur þú veitt upplýsingar um þessa tvo menn?

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um mennina á meðfylgjandi myndum en myndirnar tengjast rannsókn á ætluðu mansali. Þeir sem telja sig þekkja mennina eða geta gefið einhverjar upplýsingar um þá eru beðnir að hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum, s. 420 1800, eða við næstu lögreglustöð.

Jafnframt lýsir Lögreglan á Suðurnesjum eftir 26 ára litháískum manni, Deividas Sarapinas, vegna rannsóknar sama máls.

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins af fullum þunga en gefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Þrír Litháar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á komu konu einnar hingað til lands í síðustu viku. Leitað var að fjórða manninum en varð niðurstaðan sú að hann sé að öllum líkindum flúinn land.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.