ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fórnarlamb mansals í „góðu yfirlæti“

12:11 › 17. október 2009

Litháíska konan sem talið er að flutt hafi verið til landsins til að selja í vændi nýtur verndar og stuðnings á meðan mál hennar er rannsakað frekar. „Hún er í góðu yfirlæti og dvelur í húsnæði á vegum hins opinbera,“ segir lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

Vika er síðan hún kom til landsins en lögreglan hefur nú fundið út að skilríki hennar voru fölsuð. Litháarnir þrír sem taldir eru tengjast ætluðu mansali eru enn í gæsluvarðhaldi og verða þar til á miðvikudag.

Konan hefur gefið lögreglu upp nafn og persónuupplýsingar sem unnið er að því að fá staðfestar frá litháískum yfirvöldum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.