ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Eftirlýstir menn gáfu sig allir fram við lögreglu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:12 › 17. október 2009
Þessir tveir gáfu sig fram við lögreglu, auk þriðja mannsins sem leitað var.

Þessir tveir gáfu sig fram við lögreglu, auk þriðja mannsins sem leitað var.

Mennirnir, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í dag hafa allir gefið sig fram við lögreglu. Þeir eru grunaðir um að tengjast mansalsmáli sem lögreglan rannsakar.

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins af fullum þunga en gefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Þrír Litháar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á komu konu einnar hingað til lands í síðustu viku. Leitað var að fjórða manninum en varð niðurstaðan sú að hann sé að öllum líkindum flúinn land.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.