ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Unnur Birna: „Mamma varaði mig við“

Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is
08:00 › 16. október 2009
„Hún reyndi að vara mig við hvað það myndi þýða ef ég mér myndi ganga vel í þessum keppnum en ég er í raun ekki að átta mig á því fyrr en núna hvað hún átti við,“ segir Unnur Birna.

„Hún reyndi að vara mig við hvað það myndi þýða ef ég mér myndi ganga vel í þessum keppnum en ég er í raun ekki að átta mig á því fyrr en núna hvað hún átti við,“ segir Unnur Birna. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir segir móður sína, Unni Steinsson, hafa reynt að vara sig við því hvað það gæti haft í för með sér að vera fegurðardrottning. Hún hafi aðeins nýlega skilið varnaðarorð móður sinnar eftir að hafa upplifað margt á undanförnum árum. Hún segir það hafa verið sárt þegar einkalíf hennar var undir smásjá fjölmiðla og að það hafi verið lærdómsrík reynsla. Þetta er meðal þess sem kemur fram í einlægu viðtali við Unni Birnu í helgarblaði DV.

„Hún reyndi að vara mig við hvað það myndi þýða ef ég mér myndi ganga vel í þessum keppnum en ég er í raun ekki að átta mig á því fyrr en núna hvað hún átti við,“ segir Unnur Birna sem er ein vinsælasta fegurðardrottning Íslands fyrr og síðar, mastersnemi í lögfræði og leikkona.

Unnur hefur verið mikið í sviðsljósinu frá því að hún sigraði keppnina Ungfrú Ísland árið 2005 og var svo krýnd Ungfrú heimur í desember sama ár. Sviðsljósið hefur einnig skinið skært á einkalíf Unnar sem reyndi mikið á hana á sínum tíma. Hún segist reynslunni ríkari og ætlar framvegis að halda ástarlífinu út af fyrir sig.

Unnur er á fljúgandi siglingu í mastersnámi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og hefur mestan áhuga á því sem viðkemur alþjóðlegri lögfræði. Hún er ein af aðalleikurunum í nýjustu mynd Ladda sem hún segir hafa verið súrealískt að vinna með eftir að hafa verið aðdáandi hans frá unga aldri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?