ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Konan sem hvarf komin í leitirnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:13 › 16. október 2009
Hvarf laust fyrir miðnætti á mánudagskvöldið.

Hvarf laust fyrir miðnætti á mánudagskvöldið.

Stúlkan sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir vegna meints mansals er fundin. Hún er í vörslu lögreglunnar og er mál hennar til rannsóknar.

Frekari upplýsinga um stöðu mála í rannsókninni er að vænta í hádeginu.

Lögreglan lýsti eftir konunni í gær en hún kom hingað til lands undir nafninu Ieva Grisiúte en talið var að skilríkin sem hún framvísaði væru stolin. Hún kom til landsins með flugi síðastliðið föstudagskvöld en lét ófriðlega í flugvélinni síðasta hluta leiðarinnar. Hún átti ekki í nein hús að vernda og þekkti engan hér á landi auk þess sem hún gat litlar skýringar gefið á ferð sinni hingað til lands.

Lögreglan varð vör við þrjá menn sem biðu eftir konunni og reyndu að ná sambandi við hana. Lögreglan á Suðurnesjum kannaðist við mennina sem allir eru Litháar og þekktir brotamenn. Konunni var komið fyrir í íbúð í Reykjanesbæ í samvinnu við félagsmálayfirvöld þar í bæ. Hún hvarf hins vegar á mánudagskvöldið.

Lögreglan taldi hana kunna að vera í hættu þar sem grunur lék á um að hún væri fórnarlamb mansals.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.