Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn fóru í leit að fjórða Litháanum, sem lýst var eftir í gær í tengslum við hið meinta mansalsmál sem lögreglan á Suðurnesjum rannsakar, að fjölbýlishúsi við Ránargötu í gær. Svo virðist sem lögreglan hafi farið mannavillt þar sem maðurinn sem lögreglan heimsótti að Ránargötu ber aðeins sama fornafn og sá sem lögreglan lýsti eftir.
Í gær lýsti lögreglan á Suðurnesjum eftir 35 ára gömlum Litháa, Vitalijus Gejer, sem talinn er tengjast hinu meinta mansalsmáli. Þrír aðrir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins.
Bankað upp á í leit að röngum manni
Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn bönkuðu því upp á hjá nafna hans við Ránargötu í miðborg Reykjavíkur í gær, en hann var ekki heima. Bankaði lögreglan þá upp á hjá nágrönnum mannsins í stigaganginum og spurðist fyrir um hann.
Að sögn nágranna í húsinu sem DV.is ræddi við virðist lögreglan hafa farið mannavillt. Hinn eftirlýsti maður og nágranninn beri ekki sama eftirnafn þó þeir séu vissulega samlandar. Nágranninn segist hafa hitt manninn í gær eftir að lögreglan knúði dyra og sagt honum að lögreglan hafi verið að leita hans.
Prúður og rólegur maður
„Hann brosti og sagði það ekki vera sig sem lögreglan leitaði og að þeir hafi farið mannavillt. Kannski hafa þeir viljað fá einhverjar upplýsingar þar sem þeir eru báðir frá Litháen en nágranni minn er prúður og rólegur maður sem engin vandræði hafa verið í kringum,“ segir nágranninn í samtali við DV.is. Nágranninn segir manninn hafa útskýrt fyrir sér að lögreglan hafi ekki leitað hans, og hann hafi rætt við lögregluna og sé laus allra mála eftir því sem nágranninn komst næst.
Lögreglustjórinn Sigríður Björk Guðjónsdóttir vildi ekkert tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“