Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Skilríkin sem litháíska konan, sem kom hingað til lands fyrir viku, voru fölsuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar kemur fram að í dag var krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi þriggja Litháa sem taldir eru tengjast ætluðu mansali.
Héraðsdómur Reykjaness féllst á kröfuna og var gæsluvarðhald mannanna framlengt allt til miðvikudagsins 21. október næstkomandi. Í dag gaf konan upp nafn og persónupplýsingar sem þarf að fá staðfestar frá yfirvöldum í heimalandi hennar. Konan er nú í umsjá lögreglu.
Að öðru leyti getur lögreglan ekki tjáð sig frekar um rannsóknina á þessari stundu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna