Krafist verður áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum þremur sem handteknir voru í tengslum við hið meinta mansalsmál sem lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar. Lögreglunni barst ábending um konuna sem hvarf á mánudagskvöldið og var hún handtekin af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í Reykjavík laust fyrir miðnætti í gærkvöldi.
Talið er víst að fjórði Litháinn, Vitalijus Gejer, sem lýst var eftir í gær vegna málsins, hafi farið af landi brott í síðustu viku en eins og DV.is greindi frá í morgun var hans leitað í miðbæ Reykjavíkur í gær. Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum að ekki sé vitað hvenær eða hvort hann muni snúa aftur til landsins.
Lögreglan vill þakka almenningi og fjölmiðlum fyrir frábæra aðstoð við rannsókn málsins en fjölmargar ábendingar munu hafa borist lögreglu frá almenningi og mikil umfjöllun fjölmiðla átti sinn þátt í að konan fanst eins fljótt og raun bar vitni.
Fram kemur að síðdegis í dag sé annarar tilkynningar að vænta um framang málsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna