ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Dularfullt mannshvarf: Þrír í gæsluvarðhald

16:59 › 15. október 2009
Þrír hafa verið handteknir í tengslum við hvarfið.

Þrír hafa verið handteknir í tengslum við hvarfið.

Þrír litháískir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við hvarf Ieva Grisiúte, litháískrar konu, sem kom hingað til lands á föstudagskvöldið. Grunur leikur á að stúlkan hafi verið blekkt til að koma til landsins í þeim tilgangi að selja hana í vændi. Konan er hinsvegar ekki enn komin í leitirnar.

Þetta kemur fram á fréttavef RÚV.

Í tilkynningu frá lögreglunni frá því fyrr í dag kemur fram að konan hafi komið hingað til lands með flugi síðastliðið föstudagskvöld frá Varsjá í Póllandi. Hún hafi verið flutt rænulítil á sjúkrahús eftir að hafa látið ófriðlega í flugvélinni síðasta hluta leiðarinnar. Hún dvaldi á sjúkrahúsi aðfararnótt laugardagsins en síðan hjá Lögreglunni á Suðurnesjum að eigin ósk. Hún sagðist ekki eiga í nein hús að venda og engan þekkja hér á landi. Hún gat litlar skýringar gefið á ferð sinni hingað til land.

Samkvæmt frétt RÚV var konan flutt að eigin ósk á lögreglustöð á laugardag. Fyrst á stöðina við Hverfisgötu en síðan aftur til Reykjanesbæjar þar sem stúlkan var flutt í húsnæði á vegum félagsmálayfirvalda í Reykjanesbæ. Þar sást konan síðast á mánudagskvöldið rétt fyrir miðnætti og leikur grunur á að konan hafi verið numin á brott. Mennirnir sem hafa nú verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eru allir þekktir af afbrotum og sumir þeirra ofbeldisverkum.

Lögreglan lýsir þó enn eftir 35 ára gömlum Litháa, Vitalijus Gejer, sem talinn er tengjast málinu en hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla eftirgrennslan lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.