ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fyrsta myndin af Jaycee Lee Dugard

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:04 › 14. október 2009
Myndin af fullorðinni Jaycee.

Myndin af fullorðinni Jaycee.

  • Jaycee ellefu ára gömul

    Jaycee ellefu ára gömul

Þetta er fyrsta myndin af Jaycee Lee Dugard sem var tekin af henni sem fullorðinni manneskju eftir að henni var sleppt af mannræningja sem hafði haldið henni í átján ár og eignaðist með henni tvö börn.
Myndin birtist á forsíðu tímaritsins America´s people og birtist fyrr í dag á vefsíðu tímaritsins.

Myndin sýnir fullorðna Jaycee, nú 29 ára, brosandi beint framan í myndavélina. Það eru engin sjáanleg ummerki á henni um áfall eftir átján ára verunni hjá mannræningjanum Phillip Gardino sem gerði Jaycee að kynlífsþræl og eignaðist með henni tvö börn.

Jaycee segist vera ótrúlega ánægð að vera aftur í faðmi fjölskyldu sinnar og ekkert sé mikilvægara fyrir hana í dag en skilyrðislaus ást frá þeim og umhyggja.

Dætur hennar eru ellefu og fimmtán ára gamlar og er sagt að þær átti sig ekki enn fullkomlega á því hvað hafði komið fyrir móður þeirra og hvað hún mátti þola á þeim tíma sem hún var í prísundinni.

Jaycee er sögð ætla að vitna gegn Gardino og sé fullkomlega undirbúin til að gera það sem þarf til að koma Gardino á bak við lás og slá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.