Björn Bjarnason, fráfarandi dómsmálaráðherra, fjallar um framboð frænda síns, Bjarna Benediktssonar, á heimsíðu sinni í dag og efast um að Bjarni sé Evrópusinni svo sem haldið er víða fram. Ráðherrann gerir afstöðu Egils Helgasonar sjónvarpsmanns að umtalsefni og telur að hann glími við fíkn.
,,Bjarni Benediktsson lýsti yfir framboði til formennsku í Sjálfstæðisflokknum í samtali við sjónvarpið í kvöld. Skrýtið er að sjá Egil Helgason segja á vefsíðu sinni, að Bjarni vilji Ísland í Evrópusambandið. Þetta stenst ekki. Bjarni hefur hins vegar oft vakið máls á því, að finna þurfi niðurstöðu í Evrópumálum, þar sem tekið sé af skarið á þann veg, að þau þvælist ekki fyrir úrlausn annarra brýnni mála. Það er verkefni væntanlegs landsfundar að leiða málið til lykta innan Sjálfstæðisflokksins.
Fyrir Evrópufíkla eins og Egil nægir að heyra orðið aðildarviðræður til að þeir haldi, að aðild sé á dagskrá," bloggar Björn:
Egill glímir við Evrópufíkn
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“