Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Barack Obama hefur skrifað undir sitt fyrsta lagafrumvarp sem forseti Bandaríkjanna. Lögin auðvelda konum að höfða mál gegn yfirmönnum sínum fyrir launamisrétti.
Lagafrumvarpið, sem í daglegu tali þar ytra kallast Lilly Ledbetter-lögin, snýr við úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna frá árinu 2007 sem gerði það erfiðara að fara með launajafnréttismál fyrir dómstóla.
„Þetta er dásamlegur dagur,“ sagði Obama að gefnu tilefni. „Við erum að viðhalda einni af fyrstu grundvallarreglu þessara þjóðar, að allir skulu vera jafnir og verðskuldi að leitast eftir sinni eigin persónuleg hamingju.“
Í Bandaríkjunum er kynbundinn launamismunur 23 prósent, en hjá konum sem tilheyra minnihlutahópum er hann enn meiri.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
