ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Gasaðir fyrir að henda snjóboltum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:01 › 28. janúar 2009
Stefán Pálsson fékk engan árásarúða á sig í kvöld.

Stefán Pálsson fékk engan árásarúða á sig í kvöld. Stefán Karlsson

  • Mótmælendur voru gasaðir fyrir að henda snjóboltum í kvöld. Ljósmyndari: Heiða Helgadóttir

    Mótmælendur voru gasaðir fyrir að henda snjóboltum í kvöld. Ljósmyndari: Heiða HelgadóttirStefán Karlsson

Nokkrir mótmælendur við Nordica Hótelið í kvöld fengu yfir sig árásarúða lögreglunnar fyrir að kasta snjóboltum að húsinu. Að sögn Stefáns Pálssonar, formanns samtaka hernaðarandstæðinga finnst þetta aulalegt og óþarfi.

„Það sem gerðist var að lögreglan stikaði af mjög stórt svæði í kringum innganginn að hótelinu. Enginn fór inn á það svæði en þegar menn voru búnir að standa þarna í klukkutíma og var ekki alltof hlýtt kom upp sú hugmynd að teygja úr sér. Þá ætluðum við að ganga í kringum húsið en lögreglan var ekki búin að átta sig á að það væri bakhlið á húsinu og var ekki búin að skilgreina bannsvæði þar. Þegar við vorum komin nálægt húsinu þá sáum við loksins veisluna sem menn voru búnir að baula á fyrr um kvöldið. Þá fóru hinir og þessir í hópnum að hnoða snjóbolta og reyna að hitta í gluggana. Þá fara einhverjir lögreglumenn í hópnum að amast yfir því og kom til stympinga sem endar á því að þeir draga upp úðann og kylfur,“ segir Stefán.

„Þetta byrjaði fyrr um kvöldið. Það sem hleypti illu blóði í hópinn var að drengur var handtekinn fyrir að kveikja í NATÓ fána. Það gerði hann á mótmælasvæðinu og mér fannst sérkennilegt að reyna að stöðva hann í því. NATÓ fáninn er enginn þjóðfáni og það gilda engar reglur um hann. Mér finnst langt seilst í snjókomu í íslensku janúar veðri að óttast það á opnu bílaplani að fánadula verði einhver stórkostleg eldhætta,“ segir Stefán sem fannst aðgerðir lögreglunnar óþarfar.

„Mér fannst þetta óþarfi því það var góður andi í hópnum. Mér fannst þetta frekar aulalegt. Fjandakornið ef lögreglan ætlar að snúa hvern þann ungling niður sem hendir snjóbolta. Þegar ofankoman er eins og hún er núna gera þeir ekki mikið annað,“ segir Stefán sem telur skipulagsleysi vera ástæða þess að lögreglan beitti árásarúðanum

„Menn eru þreyttir. Lögreglumenn eru búnir að vera lengi á vakt og hefðu viljað vera heima hjá sér. Ég kenni því um að lögreglan hefur ekki búist við því að mótmælin yrðu þarna. Það var ekki tilkynnt fyrr en mjög seint og fyrir vikið kemur upp skipulagsleysi. Í þessu öllu saman gildir það jafnt um mótmælendur og lögreglumenn að ef menn anda með nefinu og telja upp á tíu þá er þetta ekkert vandamál. Það er ekki markmið hjá þeim sem taka þátt í mótmælum að lenda í slagsmálum við lögregluna og ég trúi því ekki að lögreglumenn vakni á morgnana með það að leiðarljósi að draga upp kylfur og piparúða.“

Hljóðið í Stefáni er samt sem áður gott og er hann mjög sáttur með mótmæli kvöldsins.

„Ég er býsna ánægður með þessa aðgerð okkar og fleiri. Ég held að við höfum komið okkar málstað nokkuð vel til skila. Það fór ekki framhjá þessum gestum sem komu í þetta kokteilboð í boði skattborgara að þeir væru ekki vinsælustu gestirnir. Og ég leyfi mér að fullyrða að íslenskir ráðamenn hafi meira eða minna haldið sig fjarri.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?