Helsti kosturinn í stjórnarmyndun er minnihlutastjórn Vinstri-grænna og Samfylkingarinnar með stuðningi Framsóknarflokksins, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, eftir fund sinn með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta.
Steingrímur var þriðji flokksformaðurinn til að ganga á fund forseta og ræða stjórnarmyndun og kosningar. Hann neitaði því að búið væri að ná samkomulagi um stjórnarmyndun Vinstri-grænna og Samfylkingar. Hann sagði flokkana hvorki hafa átt formlegar né óformlegar viðræður í dag. Hann sagði vitað að ákveðnir menn hefðu talað saman í síðustu viku og vísaði þar til viðræðna Össurar Skarphéðinssonar og Ögmundar Jónassonar. Hins vegar hefðu formenn flokkanna ekki rætt málin.
Aðspurður hvort kæmi til greina að semja um Evrópusambandinu eða stjórnarskrárbreytingu vegna hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu sagðist Steingrímur ekki vilja semja um stjórnarmyndun í gegnum fjölmiðla.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun