ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Útilokar ekki utanþingsstjórn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:24 › 26. janúar 2009

Ólafur Ragnar Grímsson forseti vill ekki útiloka þann möguleika að hann myndi utanþingsstjórn til að leysa af hólmi ríkisstjórnina sem nú hefur beðist lausnar. Hann segir þó að áður en til þess komi muni hann ræða við formenn stjórnmálaflokkanna til að sjá hvort þeir komi sér saman um ríkisstjórn.

Forsetinn sagði það skyldu forseta að skipa stjórn svo landið yrði ekki stjórnlaust ef flokkarnir kæmu sér ekki saman um ríkisstjórn sem nyti stuðnings þingsins. Hann sagðist ekki ætla að setja flokkunum nein tímamörk.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.