ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Þing ekki rofið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:02 › 26. janúar 2009
Geir H. Haarde vildi lítið greina frá efni fundarins með Ólafi Ragnari nema að því leyti að hann hefði veitt honum lausn frá forsætisráðuneytinu.

Geir H. Haarde vildi lítið greina frá efni fundarins með Ólafi Ragnari nema að því leyti að hann hefði veitt honum lausn frá forsætisráðuneytinu. DV/Valgeir Örn

„Þetta mál er nú í höndum forseta Íslands,“ sagði Geir H. Haarde eftir fund sinn með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.

Geir útilokaði ekki að rjúfa þing en telur það þó óheppilegt og fór hann því ekki fram á þingrof á fundinum með Ólafi Ragnari sem var að ljúka rétt í þessu.

Geir tók einnig fram að Sjálfstæðisflokkurinn væri ennþá í forystu ríkisstjórnarinnar og að flokkurinn hefði boðið fram krafta sína í þjóðstjórn.

Forystumenn hinna stjórnmálaflokkanna eru nú væntanlegir á fund Ólafs Ragnars. Þeir munu þá líklega segja honum hvort einhverjar viðræður séu þegar í gangi um stjórnarmyndun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.