Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Steingrímur J. Sigfússon sagði á Alþingi í dag að hann hefði efasemdir um þjóðstjórnartillögu Sjálfstæðisflokksins. Hann sagðist þó útiloka ekkert og engin skilyrði yrðu sett „allra síst um menn.“
Ef marka má þau ummæli virðist Steingrími vera sama þó Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði við fjölmiðla í dag að tilboð flokksins um að verja minnihlutastjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar vantrausttillögu. Því virðist líklegasti kosturinn vera sá að Samfylking og Vinstri grænir myndi minnihlutastjórn.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagðist fagna því að ríkisstjórnin skyldi sæta ábyrgð „þótt fyrr hefði verið,“ sagði hann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna