„Þetta er spurning um respect. Að láta ekki valta yfir sig,“ segir Stefanía Óskarsdóttir þegar hún er beðin um að segja til um hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki getað sætt sig við forystu Samfylkingarinnar í ríkisstjórninni.
„Hún segir að þessi niðurstaða, að slíta samstarfinu, hafi verið rökrétt niðurstaða af fundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í síðustu viku. Það var orðið erfitt að sjá hvernig Samfylkingin gat starfað áfram undir óbreyttum formerkjum með Sjálfstæðisflokknum.
„Mér finnst það skynsamlegur valkostur að stilla Jóhönnu upp sem forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar. Hún nýtur mests trausts meðal ráðherra þjóðarinnar en verkefnið framundan verður gífurlega vandasamt,“ segir Stefanía.
Stefanía segir að Steingrímur hafi nú öll spilin í sínum höndum. Hún bendir þó á að verkefnin séu risafengin. „Ég er viss um að þeir hefðu kosið að vera ekki í ríkisstjórn fram að kosningum í vor, til að geta sagt að þeir bæru enga ábyrgð á því hvernig komið væri. Nú eru hins vegar svo miklir þjóðarhagsmunur í húfi að Vinstri grænir þurfa að sýna að þeir forðist ekki ábyrgð,“ segir Stefanía og bætir við að einmitt það hafi verið notað gegn Kvennalistanum á sínum tíma.
„Listinn naut hylli í skoðanakönnunum og fékk ágætt fylgi í kosningum í seinna skiptið sem hann bauð fram. Hann var svo sakaður um að vera ekki alvöru flokkur þegar hann steig ekki inn í ríkisstjórn vegna sterkra prinsip krafna,“ útskýrir hún.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða