Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Fjölmiðlafólk bíður í ofvæni á Bessastöðum eftir að fundi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Geirs H. Haarde forsætisráðherra ljúki þar sem hinn síðarnefndi biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Blaðamönnum er boðið upp á skúffukökur og rúnstykki, og drekka með því úr glæsilegum bollum sem eflaust hefur verið skenkt í fyrir erlenda ráðamenn sem heimsótt hafa forsetann í gegn um tíðina.
Þar sem lítið er um að vera fyrir fjölmiðlafólk á meðan fundurinn stendur yfir tóku nokkrir ljósmyndarar sig til og mynduðu bollastellið í bak og fyrir. Víst má telja að þetta sé einnig sama bollastell og mótmælendur drukku kakó úr um daginn þegar þeir heimsóttu Ólaf og Dorrit Moussaieff og ræddu við þau um ástandið í landinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs