ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Segja ekkert samkomulag í höfn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:42 › 26. janúar 2009
Steingrímur segir að ekkert samkomulag um minnihlutastjórn sé í höfn.

Steingrímur segir að ekkert samkomulag um minnihlutastjórn sé í höfn. Mynd: DV

Ögmundur Jónason, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir að ekkert samkomulag sé í höfn varðandi myndun minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Hann segir að þingflokkur Vinstri grænna bíði átekta frá fundum þingflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.

Vísir greinir frá því að náðst hafi samkomulag um minnihlutastjórn VG og Samfylkingar sem varin yrði vantrausti Frjálslynda flokksins og Framsóknarflokksins. Samkomulagið myndi fela í sér að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði forsætisráðherra og Steingrímur fjármálaráðherra. Embætti forseta Alþingis falli svo í skaut Framsóknarflokksins og Guðjón Arnar Kristjánsson verði formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, þvertekur einnig fyrir að flokkurinn hafi þegar myndað minnihlutastjórn með Samfylkingu. „Ég hef ekki talað við Ingibjörgu, hvorki í gær né undanfarnar vikur, um stjórnarsamtarf,“ segir Steingrímur. Telja má það sem vísbendingu um þann hita sem er í málum að samkvæmt dagskrá átti Steingrímur nú og fram til mánaðarmóta að vera á þingi evrópuráðsins í Strasbourg en þess í stað situr hann heima.

DV hefur heimildir fyrir því að Samfylkingin hafi vissu fyrir því að hún geti efnt til skammtímasamstarfs við VG þar sem gert yrði einfalt samkomulag um fá en mikilvæg atriði eins og kemur fram í DV í dag. Reynt yrði að verjast gjaldþrotum fyrirtækja og heimila og auknu atvinnuleysi.

Samkvæmt heimildum DV hafa farið fram óformlegar viðræður milli Vinstri grænna og Samfylkingar en eins og kom fram í síðustu viku áttu Ögmundur og Össur Skarphéðinsson fund. Enn eigi þó eftir að útfæra hvernig slíku samstarfi yrði háttað. Þingflokkur Vinstri grænna fundar klukkan 11.30.

Við blasir geigvænlegur hallarekstur ríkissjóðs og lánsfjárþurrð frá öðrum löndum og líkur eru til þess meðal annars að grípa þurfi til niðurskurðar í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfinu frekar en orðið er. Ofan á annað gætir auk þess aukinnar svartsýni og eru traustar vísbendingar fyrir því að fjöldi einstaklinga og fjölskyldna undirbúi för sína af landi brott í atvinnuleit.

Þingflokkar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sitja enn á fundum í Alþingishúsinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?