ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Ný ríkisstjórn ekki mynduð í kvöld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:21 › 26. janúar 2009
Ólafur Ragnar Grímsson fundar með formönnum þingflokkanna fram á kvöld.

Ólafur Ragnar Grímsson fundar með formönnum þingflokkanna fram á kvöld. DV/Valgeir Örn

„Mér finnst ekki koma til greina að veita stjórnarmyndunarumboðið í kvöld,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Hann fundar með forystumönnum allra þingflokka í kvöld og segir nauðsynlegt að ræða við þá alla áður en umboðið verður veitt.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, kemur á fund Ólafs klukkan sex og mætir nýr formaður þingflokks á hans fund þar til klukkan níu þegar sá síðasti, Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, fundar með forsetanum. Því má búast við að fundir standi til klukkan tíu í kvöld.

Ólafur segir að þegar þessum fundum lýkur geti verið að hann kalli formenn aftur á sinn fund en búast má við að stjórnarmyndunarumboð verði veitt á morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.