ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Minnihlutastjórn í smíðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:56 › 26. janúar 2009
Ekkert verður úr tillögu Sjálfstæðisflokksins um myndun þjóðstjórnar samkvæmt heimildum DV.

Ekkert verður úr tillögu Sjálfstæðisflokksins um myndun þjóðstjórnar samkvæmt heimildum DV. DV/Valgeir Örn

Tillaga Sjálfstæðisflokksins um myndun þjóðstjórnar verður ekki að veruleika samkvæmt heimildum DV. Minnihlutastjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar er talin vera í burðarliðnum, annað hvort með þátttöku Framsóknarflokksins eða hlutleysi þeirra. Jóhanna Sigurðardóttir verður þá væntanlega forsætisráðherra.

Ingibjörg Sólrún, formaður Samfylkingarinnar, yfirgaf Alþingi rétt í þessu en hún er væntanleg til Bessastaða klukkan 18. Þar mun forsetinn athuga hvort meirihluti sé mögulegur í þinginu en þá kæmi ekki til þingrofs. Þá mun Steingrímur hitta Ólaf klukkan 19 og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins og Guðjón Arnar Kristjánsson, formann Frjálslynda flokksins, að loknum þeim fundum. Þá verður hann búinn að kanna hvort grundvöllur sé fyrir meirihluta í þinginu. Eftir það er það í höndum forsetans, ef hann metur það svo, að fela Ingibjörgu Sólrúnu að mynda þann meirihluta.

Geir H. Haarde er væntanlegur á Bessastaði núna klukkan 16 þar sem hann mun biðjast lausnar fyrir sig og sitt embætti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.