Jón Ólafsson (til vinstri) fær til sín góða gesti í Salnum í Kópavogi í tónleikaröðinni Af fingrum fram. MYND Gunnar Gunnarsson
Miðasala er hafin á tónleikaröðina Af fingrum fram undir stjórn Jóns Ólafssonar sem verður í Salnum og hefst í næsta mánuði. Þar mun Jón sitja við flygilinn og fara í gegnum sjóð íslenskra dægurlaga með gestum sínum sem eiga það sameiginlegt að hafa glatt landsmenn með tónlist sinni í lengri eða skemmtri tíma. Margir muna sjálfsagt eftir samnefndnum þáttum hans sem voru á dagskrá RÚV. Fyrsti gestur Jóns er enginn annar en Magnús Eiríksson sem hefur samið ótal lög og texta sem íslenska þjóðin hefur tekið ástfóstri við. Sérstakur gestur er Ellen Kristjánsdóttir. Næstu gestir verða svo Magnús Þór Sigmundsson og Valgeir Guðjónsson.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar