ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ingibjörg Sólrún fámál fyrir fundinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:02 › 26. janúar 2009
Ingibjörg Sólrún fundar með Ólafi Ragnari næsta klukkutímann þar sem hún kynnir honum hugmyndir sínar um nýja ríkisstjórn.

Ingibjörg Sólrún fundar með Ólafi Ragnari næsta klukkutímann þar sem hún kynnir honum hugmyndir sínar um nýja ríkisstjórn. DV/Valgeir Örn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, ræddi ekki við blaðamenn þegar hún kom á Bessastaði rétt í þessu til að funda með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.

Ólafur Ragnar hyggst funda með formönnum allra þingflokkanna í kvöld. Næst mætir Steingrímur J. Sigfússson, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, á Bessastaði klukkan sjö.

Ólafur Ragnar hefur gefið út að hann ætli ekki að ræða við blaðamenn að fundunum loknum og útilokar hann ekki að boða formennina aftur á fund sinn á morgun.

Hann vonast til að þeir geti komið sér saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar og má fastlega reikna með því að hann veiti stjórnarmyndunarumboð á morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.