ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Hélt flokknum í stjórn með handafli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:50 › 26. janúar 2009

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist hafa haldið flokki sínum í ríkisstjórn með handafli í nóvember gegn því að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi til móts við flokkinn. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir og því væri sjálfhætt. Hún segist reiðubúin til viðræðna við Vinstri-græna um myndun ríkisstjórnar undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur.

Með orðum sínum um atburðina í nóvember staðfestir Ingibjörg Sólrún það sem áður hefur komið fram í DV.

„Ég tel ekki að það sé ástæða til að fjölga í ríkisstjórn um aðgerðaleysi,“ sagði Ingibjörg Sólrún þegar hún sló hugmynd um þjóðstjórn út af borðinu. Ingibjörg talaði við fjölmiðla eftir fund sinn með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta. Hún sagði það rangt að stjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstri-grænna fram að kosningum væri svo gott sem frágengið.

Ingibjörg Sólrún sagðist hafa sagt forseta að stjórnarsamstarfinu væri slitið vegna þess að stjórnarflokkarnir kæmu sér ekki saman um aðgerðir. Hún sagði að kröftug aðgerðastjórn þyrfti að líta dagsins ljós sem fyrst, helst ekki síðar en á morgun. Stjórnarsamstarfið með Sjálfstæðisflokknum hafi ekki gengið upp vegna þess að sjálfstæðismenn hafi ekki getað klárað sín mál, þess vegna hafi Samfylkingin ekki getað beðið lengur eftir þeim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.